Myndir þú vilja vita það ef þú bærir með þér sjúkdóm sem einn góðan veðurdag slekkur á hæfileika þínum til að sofna og þín biði marga mánaða kvöl og pína – og svo dauði?
Thursday, September 13, 2012
Efni vikunnar 8.-12.9.2012
Myndir þú vilja vita það ef þú bærir með þér sjúkdóm sem einn góðan veðurdag slekkur á hæfileika þínum til að sofna og þín biði marga mánaða kvöl og pína – og svo dauði?
Sunday, September 9, 2012
Tuesday, May 22, 2012
Tvær nýjar kennslubækur
Rannsóknir á Bugðu 2.
Hér má finna yfirlit yfir helstu fuglategundir sem verpa við Bugðu. Nemendur merkja við þá fugla sem þeir sjá og skila skýrslu.
iBooks (notar flettimöguleika)
Rannsóknir á Bugðu 1
Hér má finna yfirlit yfir helstu gróðurtegundir við Bugðu. Nemendur merkja við þær plöntur sem þeir sjá og skila skýrslu.
iBooks (notar flettimöguleika)
Tuesday, April 24, 2012
Áherslur fyrir próf
Auk þess hefðbundna: þrautalausna, almennrar þekkingar og spurninga úr efni haustannar verður tekið örlítið öðruvísi á málum í lokaprófinu að þessu sinni. Það er rafrænt og þið munuð leysa það í litlum hópum og fá að nota pöddurnar og tölvur (ekki ósvipað og í kvissum). Eitthvað verður þess vegna spurt um ólesin atriði. En úr efninu verður mest áhersla lögð á þetta (frá því nýjasta til þess elsta):
Hópurinn getur fengið hvaða verkefni úr þessu hefti sem er. Þið þurfið að vera tilbúin fyrir það. Eins þurfið þið að vera tilbúin að leysa einstaklingsverkefni. Þau verða líka með.
Hér gæti verið skynsamlegt að skoða veggspjöldin sem komin eru upp á veggina og ræða við höfunda þeirra.
Skoðið öll myndböndin hér vel.
Og horfið á þetta.
Öll verkefnin úr heftinu um Flækjur og mistök geta komið. Það geta verið hóp- eða einstaklingsverkefni. Þið gætuð jafnvel fengið umræðuefni sem þið ræðið með eða við kennara. Verið undirbúin fyrir hvað sem er.
Það verður spurt um ísmanninn Ötzi. Hver var hann? Hvar fannst hann? Hvernig dó hann? Hvað er vitað um hann? Og fleira af þessu tæi. Verið búin að þaullesa kaflann og gera góðar glósur.
Hópurinn getur fengið hvaða verkefni úr þessu hefti sem er. Þið þurfið að vera tilbúin fyrir það. Eins þurfið þið að vera tilbúin að leysa einstaklingsverkefni. Þau verða líka með.
Hér gæti verið skynsamlegt að skoða veggspjöldin sem komin eru upp á veggina og ræða við höfunda þeirra.
Skoðið öll myndböndin hér vel.
Og horfið á þetta.
Öll verkefnin úr heftinu um Flækjur og mistök geta komið. Það geta verið hóp- eða einstaklingsverkefni. Þið gætuð jafnvel fengið umræðuefni sem þið ræðið með eða við kennara. Verið undirbúin fyrir hvað sem er.
Þið verðið spurð um Rauðhóla og hafið þar á engu að byggja nema bókunum sem þið gerðuð sjálf. Ég mun ekki hafa milligöngu um að afhenda ykkur bækurnar, þið verðið að fá þær gegnum ykkar hóp. Eins mun ég prófa ykkur í að finna löglegar myndir á netinu.
Þið þurfið að lesa vel og kunna kaflann um litrófsgreiningu. Verið með góðar glósur. Ekki vanmeta þennan kafla. Þið þurfið að undirbúa ykkur vel og hafið í huga að það er lengst síðan þið fóruð í þessan tíma.
Monday, April 16, 2012
Monday, March 26, 2012
Verði ljós
Hér er tilraun sem Hrefna Rún, Rebekka og Hekla, nemendur í Úllónolló framkvæmdu
Horfðu á myndbandið hér að ofan. Þú getur valið íslenskan texta með því að velja [cc] hnappinn. Þá þarftu að horfa á myndbandið hér.
Hér er mynd eftir höfund þáttarins sem rennir yfir aðalatriðin.
Horfðu svo á þetta:
Og loks þetta:
Monday, February 20, 2012
Flækjur & mistök
Brot úr bókinn:
Hér er gott að hugsa sér einfalt dæmi. Segjum sem svo að þú farir að heiman með 100 kr. pening í vasanum. Þegar þú kemur á áfangastað uppgötvar þú að peningurinn er horfinn. Þú tekur líka eftir því að það er gat á vasanum. Hér má hugsa sér margar tilgátur. Vel þjálfaður vasaþjófur hefði getað náð peningnum úr vasanum án þess að þú tækir eftir því. Þrátt fyrir ýmsa möguleika er næstum öruggt að þeir eru allir miklu flóknari en sú skýring að peningurinn hafi dottið út um gatið. Rakhnífur Occams setur okkur þá reglu að skera burt allan óþarfa úr tilgátum okkar. Við ímyndum okkur ekki vasaþjóf til að útskýra hvarf hundraðkrónupenings ef einfaldari skýring dugar jafn vel.
![]() |
| 14 bls |
Er hægt að fá nýjar hugmyndir? Hvernig stendur á því að hlutir verða svona flóknir þegar maður hugsar um þá á ákveðinn hátt? Hvernig verður tilgáta að kenningu? Eru allar kenningar örugglega sannar?
Hér er fjallað um tengsl skynjunar og hugsunar og þá kosti og galla sem fylgja vísindalegri nálgun á veruleikann.
Sækja:
.pdf
Hér er verkefnabók/gátlisti sem á að hafa til hliðsjónar þegar unnið er úr textanum. Hann er á formi spurninga sem skiptast í þrjá fokka: Tókstu eftir? Skildir þú? Hefur þú einhverju við að bæta?
Í fyrsta flokki eru spurningar með skýr, afmörkuð svör en reyna ekki á mikið annað en athyglisgáfu og eftirtekt. Í öðrum og þriðja flokki er reynt á skilning og frumlega hugsun.
Sækja:
Subscribe to:
Posts (Atom)















